Freyja Dís Hreinsdóttir er uppalin hjá Fjölni þar sem hún steig sín fyrstu skref í meistaraflokki á unglingsaldri. Þrátt fyrir ungan aldur hafði hún þegar spilað tvö tímabil með meistaraflokki félagsins og fest sig í sessi þegar hún skipti yfir í Fram fyrir tímabilið í fyrra.
Freyja, sem getur leikið bæði sem bakvörður og á kantinum, hefur vakið athygli fyrir hraða sinn, vinnusemi og fjölhæfni. Hún spilaði níu leiki með Fram í Bestu deildinni í fyrra. Í dag sýnir Freyja á sér hina hliðina.
Freyja, sem getur leikið bæði sem bakvörður og á kantinum, hefur vakið athygli fyrir hraða sinn, vinnusemi og fjölhæfni. Hún spilaði níu leiki með Fram í Bestu deildinni í fyrra. Í dag sýnir Freyja á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Freyja Dís Hreinsdóttir
Gælunafn: hef aldrei verið með neitt sem hefur haldist
Aldur: 18 að verða 19
Hjúskaparstaða: glaðlega á lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: 2021 eða 14 ára og man ekki neitt, man ekki einu sinni á móti hverjum, stressið fór alveg með mig
Uppáhalds drykkur: blár gatorade er í uppáhaldi
Uppáhalds matsölustaður: Serrano
Uppáhalds tölvuleikur: ég get ekki farið að sofa án þess að fara í GTA
Áttu hlutabréf eða rafmynt: niii er ekki nógu góð með tölur
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Friends er my comfort show
Uppáhalds tónlistarmaður: er ekki Aron Can alltaf bestur?
Uppáhalds hlaðvarp: hlusta alltaf á Call her daddy
Uppáhalds samfélagsmiðill: er chronically á Tiktok
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: opna inna.is í von um að tíminn minn falli niður
Fyndnasti Íslendingurinn: Steindi lang fyndnastur
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: your order has been delivered!
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: sé ekki fyrir mér að geta spilað með neinu liði úti á landi
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: það var erfitt að mæta Sammy Smith í fyrra
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: úff margir mjög góðir.. fyrir utan Anton held ég að Maggi Hödd taki þetta
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: örugglega bara Agla María, bæði sterk og hröð
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Margrét Lára var í miklu uppáhaldi
Sætasti sigurinn: var ekki mikið að vinna í yngri flokkunum en það voru nú alveg nokkrir góðir seinasta sumar
Mestu vonbrigðin: held bara að komast ekki upp í Lengju sumarið 2024 með Fjölni
Uppáhalds lið í enska: Chelsea því miður
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið:
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Kristín Barboza er mjög efnileg
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: úff ætli ég gefi ekki bróðir mínum meira egó og segi Aron Fannar Hreinsson, góð gen;)
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: hafiði séð allt Fram liðið?? Get ekki valið bara eina úr svona fallegum hóp
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Cristiano Ronaldo
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: væri til í að það mætti spila með eyrnalokka
Uppáhalds staður á Íslandi: Grafarvogurinn
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: ekkert eitt atvik en skoraði fyrsta mfl markið mitt og lagði upp þrjú í sama leik
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: keppi alltaf í sama íþróttatopp
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: fylgist stundum með handbolta með öðru auganu
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: nike mercurial alltaf bestir
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: sökkaði í stærðfræði í grunnskóla en þetta er allt að koma núna.. vonandi
Vandræðalegasta augnablik: skallaði stöngina í horni þegar ég ætlaði að skalla frá
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Kristínu fyrir læti, Sylvíu fyrir skynsemi og spjall og Þóru fyrir hlátursköst
Bestur/best í klefanum og af hverju: Þóra Rún kemur manni alltaf í hláturskast
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Unu Rós í Love Island allan daginn, hún myndi thrive-a í sól og spjalli
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: lærði á klukku í fyrra 18 ára gömul #takksyllabigg
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Sylvía Birgis, hélt hún væri mega bitch en hún er queen!!
Hverju laugstu síðast: að ég spila alltaf GTA áður en ég fer að sofa
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: 60 metrar eru ekki í miklu uppáhaldi iykyk en varnarfærslur eru close second
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: myndi spyrja Cristiano Ronaldo um abs routine
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: áfram Fram og allir á völlliiinn!!



