Fotbolti.net
18.11.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Raphinha bað um að vera áfram með landsliðinu

Raphinha bað um að vera áfram með landsliðinu
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski kantmaðurinn Raphinha er einn af allra bestu kantmönnum heims um þessar mundir.
Raphinha fékk rautt í tapi gegn Japan - „Spiluðum á móti dómaranum"
TENGT EFNI

Raphinha fékk rautt í tapi gegn Japan - „Spiluðum á móti dómaranum"

Hann hefur verið í miklu stuði með Barcelona á Spáni en fékk rautt spjald í tapi Brasilíu í vináttulandsleik gegn Japan á dögunum. Raphinha var mjög óánægður með dómgæsluna í leiknum og fékk rautt spjald frá dómaranum fyrir að mótmæla sigurmarki Japana sem þeir skoruðu í uppbótartíma.

Raphinha, sem talaði á dögunum um að Carlo Ancelotti landsliðsþjálfari og Brasilía þyrftu að virða ákveðnar reglur til að hann myndi spila fyrir landsliðið, fékk kost á því að fljúga aftur til Spánar eftir að hann var dæmdur í leikbann. Þar hefði hann getað mætt aftur á æfingasvæði Barcelona og hafið undirbúning fyrir næsta leik, en ákvað að gera það ekki.

Raphinha bað sérstaklega um að fá að vera áfram með landsliðinu til að styðja við bakið á liðsfélögunum og er Ancelotti gríðarlega ánægður með ákvörðunina.

„Raphinha bað persónulega um að fá að vera áfram með hópnum til að styðja við liðsfélagana þrátt fyrir að vera í leikbanni. Þetta sýnir ástina sem hann hefur fyrir landsliðinu, það er mjög mikilvægt fyrir okkur," sagði Ancelotti.

Ancelotti fékk líka rautt spjald og sátu þeir saman uppi í stúku í stórsigri gegn Singapúr í gær.
Raphinha bað um að vera áfram með landsliðinu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.