Fotbolti.net
18.11.26 - 08:20
Elvar Geir Magnússon

Andri Lucas sendir Mowbray hlýja strauma

„Þakka þér stjóri fyrir að veita okkur öllum innblástur og fá okkur til að trúa... ekki aðeins sem fótboltamenn heldur einnig sem manneskjur. Ég sendi styrk til þín og þinnar fjölskyldu." - Andri Lucas Guðjohnsen.

„Þakka þér stjóri fyrir að veita okkur öllum innblástur og fá okkur til að trúa... ekki aðeins sem fótboltamenn heldur einnig sem manneskjur. Ég sendi styrk til þín og þinnar fjölskyldu." - Andri Lucas Guðjohnsen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Í gær var greint frá því að Tony Mowbray, stjóri Blackburn Rovers, hefði látið af störfum hjá Championship-liðinu vegna heilsufarsvandamála.

Íslenski landsliðsmaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen spilar með Blackburn og hefur verið funheitur undir hans stjórn.

„Mér finnst við allir vera frjálsir inni á vellinum, hann leyfir okkur að vera svolítið bara við inni á vellinum sem hjálpar. Hann er ekkert að reyna segja okkur hvað við eigum að gera. Hann sér um að koma okkur ofar upp völlinn og leyfir okkur um að sækja á liðin og skora. Við þurftum líka að taka aðeins til í varnarleiknum fannst mér sem hefur verið gert vel á þessu tímabili," sagði Andri Lucas í viðtali við Fótbolta.net á dögunum þegar hann var spurður út í stjórnarhætti Mowbray.
Andri Lucas: Er með geggjaðan innri hring sem eru alltaf til staðar
TENGT EFNI

Andri Lucas: Er með geggjaðan innri hring sem eru alltaf til staðar

Andri hefur skorað 10 mörk í 14 leikjum fyrir Blackburn á tímabilnu og er næstmarkahæstur í Championship-deildinni.

Mowbray hafði áður sagt skilið við fótboltann á meðan hann var stjóri Birmingham City í byrjun árs 2024 eftir heilsufarsvandamál og síðar greindi hann frá því að hann hefði verið í meðferð við krabbameini í ristli.

Eftir að fréttirnar bárust í gær sendi Andri Lucas hlýja strauma til Mowbray og skrifaði á Instagram:

„Þakka þér stjóri fyrir að veita okkur öllum innblástur og fá okkur til að trúa... ekki aðeins sem fótboltamenn heldur einnig sem manneskjur. Ég sendi styrk til þín og þinnar fjölskyldu."
Kveðja Andra Lucasar.

Kveðja Andra Lucasar.

Canon

Mynd: Instagram/Skjáskot

Tony Mowbray.

Tony Mowbray.

Canon

Mynd: Blackburn Rovers

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.