Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mán 13. apríl 2026 16:37
Kári Snorrason
Valur hefur áhuga á Aroni Snæ
Aron Snær ingason.
Aron Snær ingason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur hefur áhuga á Aroni Snæ Ingassyni, leikmanni Þróttar. Vakið var athygli á áhuga Vals á kantmanninum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardaginn síðastliðinn.

Aron, sem er fæddur árið 2001, er uppalinn í Fram en hann gekk varanlega til liðs við Þróttara sumarið 2024 eftir að hafa leikið í Laugardalnum á láni frá Fram árið áður.

Aron verður samningslaus í lok árs, en hann skoraði sjö mörk í 23 leikjum á síðasta tímabili í Lengjudeildinni.

Þá hefur Þróttur verið orðað við Andi Hoti, varnarmann Vals. Hoti hefur lítið komið við sögu hjá Hlíðarendafélaginu eftir að hann var keyptur frá Leikni fyrir rúmu ári síðan.
Útvarpsþátturinn - Óheppileg mistök og vítakall
Slapp
banner
banner