Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 13. maí 2021 22:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp: Áttum þetta skilið - Erum enn í kapphlaupinu
Mynd: EPA
„Frábær barátta og góður leikur. Þetta er minn fyrsti sigur á Old Trafford," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir sigur gegn Manchester United í skemmtilegum leik í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

„Við þurftum á þessu að halda og við áttum þetta skilið. Þetta er allt í góðu."

Liverpool lenti undir eftir tíu mínútna leik en brást mjög vel við því. „Við stóðum okkur ekki vel fyrstu 15 mínúturnar en svo náðum við tökum á leiknum og gátum spilað eins og við vildum spila."

„Þetta var flott frammistaða frá öllum. Miðverðirnir okkar voru áttu erfitt uppdráttar til að byrja með varðandi sendingar en þeir skiluðu góðu dagsverki. Þetta var erfitt í 3-2 en svo náðum við fjórða markinu. Við þurftum á því að halda."

Liverpool er í sjötta sæti, sex stigum frá Meistaradeildarsæti. Liðið á hins vegar leik til góða á Chelsea sem situr í fjórða sæti núna; Liverpool á þrjá leiki eftir og Chelsea tvo.

„Við erum enn með í kapphlaupinu. Við verðum að jafna okkur fljótt og halda áfram."
Athugasemdir
banner
banner
banner