Fotbolti.net
13.06.16 - 10:37
Ívan Guðjón Baldursson

Emery hættur með Sevilla (Staðfest) - Á leið til PSG

Emery hættur með Sevilla (Staðfest) - Á leið til PSG
Canon

Mynd: Getty Images

Spænski þjálfarinn Unai Emery er búinn að segja upp störfum hjá Sevilla eftir þrjú farsæl ár við stjórnvölinn.

Á þessum þremur árum hefur Sevilla tekist að vinna Evrópudeildina þrisvar sinnum í röð.
Ekkert hefur verið staðfest en allar líkur eru á því að Emery sé hættur með Sevilla til að taka við frönsku meisturunum PSG, sem spila án Zlatan Ibrahimovic á næsta tímabili.

Emery er 44 ára gamall og hefur áður stýrt Almeria, Valencia og Spartak frá Moskvu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.