Fotbolti.net
13.06.16 - 16:36
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Pjanic kominn til Juventus (Staðfest)

Pjanic kominn til Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Juventus er búið að staðfesta komu Miralem Pjanic til félagsins, en hann kemur frá Roma.

Pjanic er miðjumaður frá Bosníu sem átti frábært tímabil með Roma í ítölsku deildinni og hefur verið gríðarlega eftirsóttur í sumar.
Pjanic er 26 ára gamall og er þekktur fyrir góða skottækni og frábæra sendingagetu. Þá er hann sérfræðingur í föstum leikatriðum og skoraði meðal annars beint úr fjórum aukaspyrnum í ítölsku deildinni á nýliðnu tímabili.

Manchester United og Barcelona eru meðal þeirra félaga sem eru talin hafa haft áhuga á miðjumanninum hæfileikaríka. Pjanic kostaði 32 milljónir evra vegna kaupákvæðis í samningi hans, en hann er metinn á rúmlega 50 milljónir eftir félagsskiptin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.