Það var mjög athyglisvert að sjá hvernig Marko Arnautovic, leikmaður Austurríkis, fagnaði þegar hann skoraði gegn Norður-Makedóníu á EM.
Sjá einnig:
EM: Langþráður sigur Austurríks - Pandev skoraði
Sjá einnig:
EM: Langþráður sigur Austurríks - Pandev skoraði
Arnautovic kom inn af bekknum og skoraði þriðja mark Austurríkis; hann innsiglaði sigurinn.
Arnautovic er litríkur karakter og hann var ekki sáttur með eitthvað. Hann virtist reiður þegar hann skoraði og spurning hvort hann hafi verið með skilaboð til þjálfara síns fyrir bekkjarsetuna.
David Alaba, stærsta stjarna Austurríkis, reyndi að þagga niður í Arnautovic með því að grípa um andlit hans. Hann virtist vera að reyna að segja honum að róa sig niður, en Arnautovic tók það ekki í mál.
Þetta var athyglisverð uppákoma en hana má sjá hér að neðan.
alaba telling arnautovic to shut up is very good content imo pic.twitter.com/9TKowEcM42
— jake fields (@jake_fields) June 13, 2021
Athugasemdir