Liverpool er sagt ætla að kaupa Fabio Vieira frá Porto. Viera er fjölhæfur en hann getur leyst allar stöður á miðjunni.
Þessi 21. árs gamli leikmaður lék 29 leiki fyrir Porto á síðustu leiktíð. Hann er með samning til 2022 og er talið að hann hafi ekki áhuga á að framlengja samning sinn við félagið.
Marko Grujic er samningsbundinn Liverpool en hann var á láni hjá Porto á síðustu leiktíð. Porto hefur áhuga á að kaupa Grujic en eru ekki tilbúnir að borga 15 milljónir punda verðmiða sem Liverpool hefur sett á leikmanninn.
Liverpool er þó tilbúið að kaupa Vieira frá Porto á rúmar 17 milljónir punda og láta Grujic fara til Porto sem hluti af kaupverðinu.
Athugasemdir