Ísland vann 3-2 sigur á Írlandi í vináttulandsleik á Laugardalsvelli á föstudag.
Þetta var fyrsti landsleikurinn á Laugardalsvelli á árinu og fyrsti landsleikur kvennaliðsins á heimavelli undir stjórn Þorsteins Halldórssonar síðan hann tók við liðinu.
Agla María Albertsdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir skoruðu mörk Íslands í fyrri hálfleik.
Á 50. mínútu minnkaði Heather Payne muninn fyrir Íra og Amber Barrett skoraði svo á 92. mínútu, en nær komust írsku stelpurnar ekki.
Hægt er að sjá mörkin úr leiknum hér að neðan, en leikurinn var sýndur í beinni á Stöð 2 Sport.
Liðin mætast aftur í vináttulandsleik á Laugardalsvelli næstkomandi þriðjudag. Hægt er að kaupa miða á leikinn með því að smella hérna. Allir að styðja stelpurnar okkar!
Athugasemdir