fös 13. júní 2025 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Terry nálægt því að gefa drauminn upp á bátinn
John Terry.
John Terry.
Mynd: John Terry
John Terry segist vera nálægt því að gefa drauminn upp á bátinn um að verða stjóri Chelsea. Það hefur gengið illa hjá Terry að finna stjórastarf og telur hann enska stjóra ekki fá jöfn tækifæri á við aðra.

Terry er einn besti varnarmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og var hann lengi fyrirliði Chelsea. Eftir að skórnir fóru upp á hillu hefur hann verið aðstoðarstjóri Aston Villa og síðustu ár hefur hann verið í hlutastarfi í akademíu Chelsea.

Terry langar að verða stjóri og segist vera að leggja á sig mikla vinnu til þess, en það gangi illa hjá honum að finna áhugavert starf.

„Ég er að eyða svo miklum tíma í að bíða eftir þessu tækifæri," segir Terry.

„Því meira sem tíminn líður, þeim mun líklegra verður að ég segi bara: 'Hingað og ekki lengra'. Einbeiti mér að öðrum hlutum. Ég var fyrirliði Chelsea og fyrirliði enska landsliðsins. Ég veit ekki af hverju ég hef ekki fengið tækifærið."

„Mér finnst enskir þjálfarar ekki fá sömu tækifærin. Ég hef rætt við félög í neðri deildum og þar hef ég fengið svör um að ég sé ekki með nægilega mikla reynslu. Það er eins og árin mín hjá Aston Villa skipti engu. Mér finnst ég tilbúinn og ég veit að ég er tilbúinn.," sagði Terry.
Athugasemdir
banner
banner
banner