13.07.21 - 17:50
Ívan Guðjón Baldursson
Leverkusen fær Bakker frá PSG (Staðfest)

Bakker á 51 landsleik að baki fyrir yngri lið Hollendinga.

Mynd: Getty Images

Vinstri bakvörðurinn Mitchel Bakker er genginn í raðir Bayer Leverkusen í Þýskalandi eftir tveggja ára dvöl hjá Paris Saint-Germain.
Bakker er 21 árs gamall Hollendingur sem gekk í raðir PSG frá Ajax fyrir tveimur árum og spilaði 40 leiki fyrir stórveldið á síðustu leiktíð.
Leverkusen er talið greiða um 10 milljónir evra fyrir Bakker sem skrifar undir fjögurra ára samning við félagið.
Bakker mun berjast við samlanda sinn Daley Sinkgraven og hinn brasilíska Wendell um byrjunarliðssæti hjá Leverkusen.
Leverkusen hafnaði í sjötta sæti þýsku deildarinnar í vor og leikur því í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í haust.