Laporta staðfesti Adeyemi - Vonast til að fá Alvarez

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Barcelona

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Joan Laporta forseti Barcelona er búinn að staðfesta samkomulag við Borussia Dortmund um kaup á kantmanninum Karim Adeyemi, sem átti aðeins eitt ár eftir af samningi.

TENGT EFNI
Alvarez varpar sprengju: Best fyrir alla að ég fari
Börsungar borga í heildina tæpar 30 milljónir evra með árangurstengdum aukagreiðslum fyrir þennan 24 ára þýska landsliðsmann, sem var þó ekki valinn í landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið í sumar.
„Við erum svo ánægðir með samkomulagið, þetta er leikmaður sem við höfum verið að fylgjast með í langan tíma. Hann er snöggur og teknískur leikmaður, Deco gerði mjög vel að krækja í hann," sagði Laporta, sem fór víðan völl og ræddi meðal annars Lionel Messi.
„Messi á hrós skilið fyrir hvernig hann er að spila á þessu heimsmeistaramóti. Argentína er með gott lið sem hjálpar Messi að spila upp á sitt besta."
Laporta var spurður út í orðróm sem segir Evrópumeistara PSG hafa áhuga á spænska landsliðsmanninum Ferran Torres sem skoraði 21 mark í 49 leikjum á síðustu leiktíð.
„Ég hef ekkert heyrt af því að hann sé á leið til PSG. Hann er leikmaður Barcelona og er að gera mjög góða hluti á heimsmeistaramótinu. Anthony Gordon er líka í góðu formi, stoðsendingin hans á Jude Bellingham var frábær.
„Ég vil taka sérstaklega fram að við viljum alls ekki missa Raphinha, hann er algjör lykilmaður fyrir okkur. Kaupin á Gordon og Adeyemi tengjast Raphinha ekki neitt og þýða ekki að hann sé á förum."
Laporta ræddi að lokum um Julián Alvarez sem er helsta skotmark Barcelona í sumar. Hann skoraði glæsilegt mark til að hjálpa Argentínu að leggja tíu Svisslendinga að velli í framlengingu í 8-liða úrslitum HM um helgina.
„Þetta var stórkostlegt mark og ég vona að Alvarez skipti yfir til okkar. Við eigum í góðu sambandi við stjórnendur Atlético Madrid og ég er búinn að ræða við þá. Ég sagði þeim að upprunalega tilboðið stendur og mun standa í einhvern tíma, en þó ekki að eilífu."
Talið er að Barcelona hafi boðið um 130 milljónir evra til að kaupa Alvarez, sem vill ólmur skipta um félag og ganga til liðs við Lamine Yamal, Raphinha og félaga. Atlético vill ekki selja.

Alvarez: Viljum vinna þetta mót fyrir Messi

Mynd: EPA

Mynd: Barcelona

Mynd: EPA

Mynd: EPA