13.08.15 - 08:00
Arnar Geir Halldórsson
Charles Aranguiz til Bayer Leverkusen (Staðfest)

Nýjasti liðsmaður Bayer Leverkusen

Mynd: Getty Images

Nýjasti liðsmaður Bayer Leverkusen

Mynd: Getty Images
Sílemaðurinn Charles Aranguiz er genginn til liðs við þýska úrvalsdeildarliðið Bayer Leverkusen.
Aranguiz kemur til Leverkusen frá brasilíska liðinu Internacional þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö ár.
Þessi 26 ári gamli miðjumaður á 40 landsleiki að baki fyrir Síle og var í stóru hlutverki hjá liðinu í Suður-Ameríkubikarnum í sumar þegar Síle vann keppnina í fyrsta sinn í sögunni.
Leverkusen borgar 12 milljónir punda fyrir kappann sem hafnaði samningstilboði Leicester á dögunum.