13.08.15 - 09:00
Arnar Geir Halldórsson
Swansea fær tvo markverði (Staðfest)

Gerhard Tremmel hættur við að hætta hjá Swansea

Mynd: Getty Images

Swansea gekk í gær frá samningum við tvo markmenn, þá Josh Vickers og Gerhard Tremmel.
Tremmel hefur verið á mála hjá Swansea frá árinu 2011 en hugðist yfirgefa félagið eftir síðasta tímabil. Hann hefur nú skipt um skoðun og gert nýjan tveggja ára samning við Swansea.
Þessi 36 ára gamli Þjóðverji hefur leikið 52 leiki fyrir Swansea.
Á sama tíma samdi Swansea við Josh Vickers, 19 ára Englending sem var áður á mála hjá Arsenal. Hann hefur æft með Swansea í sumar og hefur nú gert tveggja ára samning við félagið.
Vickers mun koma til með að spila með varaliði Swansea í vetur.
Fyrr í sumar fékk Swansea sænska markvörðinn, Kristoffer Nordfeldt, til liðs við sig frá Heerenveen og því ljóst að Lukasz Fabianski er kominn með samkeppni um markvarðarstöðuna.