Fotbolti.net
13.08.15 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Ungur varnarmaður til Everton (Staðfest)

Mason Holgate.

Mason Holgate.

Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur keypt varnarmanninn unga Mason Holgate frá Barnsley.

Holgate er 18 ára gamall en hann hefur þrátt fyrir það talsverða reynslu með aðalliði Barnsley.
Holgate skrifaði undir fimm ára samning við Everton en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Árið 2013 keypti Everton varnarmanninn John Stones frá Barnsley þegar hann var 18 ára.

Stones hefur slegið í gegn hjá Everton og draumur stuðningsmanna liðsins er að ferill Holgate fari í sömu átt.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.