Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 13. ágúst 2020 08:57
Magnús Már Einarsson
Myndir: Nýr varabúningur Liverpool kynntur
Mynd: Liverpool
Englandsmeistarar Liverpool kynntu í dag nýjan varabúning sinn fyrir næsta tímabil.

Nýi búningurinn er grænn en á síðasta tímabili var Liverpool í hvítum varabúningi.

Búningurinn er frá Nike sem tók við af New Balance sem búningaframleiðandi Liverpool í sumar.

Á heimasíðu Liverpool kemur fram að mynstrið í búningnum sæki innblástur í Shankly hliðin á Anfield og einnig í rætur tónlistarborgarinnar Liverpool.

„Ég er mikill aðdáandi nýja varabúningsins. Ég elska hönnunina og hvernig hún endurspeglar borgina og sérstök atriði hjá félaginu," sagði Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool.




Athugasemdir
banner
banner