Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
banner
   fös 13. ágúst 2021 21:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Stelpurnar voru að gera grín að því að ég hefði verið eins og einhver vofa"
Kvenaboltinn
Málfríður Anna
Málfríður Anna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er bara æðislegt, við höfum ekki unnið hérna í mörg ár þannig þetta er frábært. Allt liðið spilaði frábærlega í dag," sagði Málfríður Anna Eiríksdóttir, markaskorari Vals, eftir sigur á Breiðabliki í kvöld.

„Við spiluðum okkar leik og sóttum til sigurs, við vorum aldrei að hugsa um neitt jafntefli. Liðsheildin skóp sigurinn."

Lestu um leikinn: Breiðablik 0 -  1 Valur

Málfríður skoraði eina mark leiksins eftir hornspyrnu Dóru Maríu Lárusdóttir á tólftu mínútu.

„Dóra kemur með boltann á fjær, ég held að ég hafi reyndar átt að hlaupa á nær en ákvað samt að hlaupa á fjær og náði að skalla hann inn af stuttu færi."

Það skilar sér stundum að gera ekki það sem lagt er upp með að gera? „Já, það gerir það stundum, ég var búinn að gleyma aðeins hvert ég ætti að fara."

Hversu ljúft var að sjá boltann liggja í netinu?

„Frábært, ég vissi ekki hvernig ég ætti að haga mér. Ég skora mjög sjaldan og stelpurnar voru að gera grín að því inn í klefa að ég hefði verið eins og einhver vofa þarna."

Sjö stiga forskot í deildinni, er þetta komið?

„Alls ekki, við erum búnar að eiga ógeðslega erfiða leiki gegn eiginlega öllum liðum. Síðasti leikur á móti ÍBV var ógeðslega erfiður og við vorum eiginlega heppnar að vinna hann. Við þurfum að mæta í alla leiki, við eigum þrjá erfiða leiki sem við þurfum að klára," sagði Málfríður.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum að ofan
Slapp
Athugasemdir
banner