Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. ágúst 2022 18:56
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild: Breiðhyltingar sigruðu Ólafsvíkinga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR 2 - 1 Víkingur Ó.
0-1 Luis Romero Jorge ('7 )
1-1 Jorgen Pettersen ('58 )
2-1 Bragi Karl Bjarkason ('72 )


ÍR og Víkingur Ólafsvík áttust við í síðasta leik dagsins í 2. deild karla og tóku Ólsarar forystuna snemma leiks með marki frá Luis Romero Jorge.

Víkingar héldu forystunni í tæpa klukkustund áður en Jorgen Pettersen jafnaði fyrir heimamenn í Breiðholti.

Sigurmark leiksins kom svo á 72. mínútu þegar Bragi Karl Bjarkason kom boltanum í netið.

Lokatölur 2-1 fyrir ÍR en liðin voru jöfn á stigum fyrir umferðina. ÍR er núna með 19 stig eftir 16 umferðir og Víkingar með 16, sex stigum fyrir ofan fallsvæðið.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner