Fotbolti.net
12.09.26 - 22:14
Ívan Guðjón Baldursson

Arteta létt: Óásættanlegur vítaspyrnudómur

Arteta létt: Óásættanlegur vítaspyrnudómur
Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta, þjálfara Englandsmeistara Arsenal, var mjög létt eftir lokaflautið í erfiðum leik á útivelli gegn Sunderland í kvöldleik ensku úrvalsdeildarinnar.
England: Meistarasigur í Sunderland
TENGT EFNI

England: Meistarasigur í Sunderland

Sunderland fékk dæmda vítaspyrnu sem Arteta er alls ekki sáttur með en David Raya gerði sér lítið fyrir og varði frá Enzo Le Fée. Tveimur mínútum síðar skoraði Bruno Guimaraes laglegt mark á hinum enda vallarins.

„Þessi leikur hefði getað endað illa. Þessi vítaspyrnudómur er fyrir neðan allar hellur, það er óásættanlegt að dæma vítaspyrnu á þetta. Ég horfði á endursýninguna tíu sinnum til að vera viss, þessi ákvörðun er fáránleg. Þetta getur ekki verið vítaspyrna. Ég hef verið í fótbolta í 27 ár og þetta er aldrei vítaspyrna, ekki í neinu tilfelli, ekki á neinu gæðastigi og ekki í neinni deild," sagði Arteta áður en hann hrósaði Guimaraes og Raya.

„Guimaraes réði úrslitum með þessu marki, þetta var svo mikilvægt. Raya er ótrúlegur og bjargaði okkur með þessa markvörslu.

„Sunderland á hrós skilið fyrir sína frammistöðu, þeir spiluðu af miklu hugrekki og eru augljóslega mjög vel þjálfaðir. Þeir eru frábært fótboltalið og gerðu okkur mjög erfitt fyrir. Ég er virkilega ánægður að ná í þrjú stig á þessum velli.

„Við erum búnir að eiga rosalega erfiða viku. Við unnum gegn Chelsea, svo unnum við Napoli úti og í kvöld unnum við aftur."


Arsenal er með sex sigra eftir sex leiki í öllum keppnum á upphafi tímabils.
Arteta létt: Óásættanlegur vítaspyrnudómur
Canon

Mynd: Arsenal

Arteta létt: Óásættanlegur vítaspyrnudómur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.