Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 13. ágúst 2022 21:26
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Ótrúleg spenna eftir sigur Sindra í toppslag
Mynd: Sindri

Sindri 2 - 0 Dalvík/Reynir
1-0 Ibrahim Sorie Barrie ('35 )
2-0 Abdul Bangura ('83 )


Ibrahim Sorie Barrie og Abdul Bangura sáu um markaskorunina er Sindri gerði þegar spennandi toppbaráttu 3. deildar enn meira æsispennandi með sigri gegn Dalvík/Reyni í toppslag.

Ibrahim skoraði í fyrri hálfleik og innsiglaði Abdul sigurinn á 83. mínútu, sem þýðir að Sindri deilir toppsæti deildarinnar með Dalvíkingum og KFG þar sem öll liðin þrjú eru með 31 stig eftir 16 umferðir.

Tvö lið fara upp um deild en það eru ekki aðeins þrjú lið sem koma til greina vegna þess að Víðir er í fjórða sæti, aðeins tveimur stigum eftirá, og svo kemur KFS sem er fimm stigum á eftir.

Það eru sex umferðir eftir af tímabilinu og á Sindri næst útileik gegn Elliða áður en liðið kíkir í heimsókn til KFG í toppslag.

Dalvíkingar taka á móti KFS næsta laugardag og heimsækja svo Kormák/Hvöt þriðjudaginn þar á eftir.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner