Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 13. ágúst 2022 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gary Martin fór fögrum orðum um Orra - Væri í toppliði í efstu deild
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gary Martin leikmaður Selfoss hefði viljað sjá Orra Sigurjónsson fá rauða spjaldið í leik Selfoss gegn Þór á dögunum.


Orri hefði átt að fá rautt en Erlendur Eiríksson dómari gaf Hermanni Helga Rúnarssyni rautt fyrir brot sem Orri framdi.

„Það hefði verið gott fyrir mig ef Orri hefði fengið rautt, hann er besti leikmaðurinn þeirra. Ég hef miklar mætur á Orra, ef hann hefði verið heill allan sinn feril væri hann að spila fyrir eitt af bestu liðunum í efstu deild. Ég hefði viljað sjá hann fara útaf því það hefði verið mun auðveldara fyrir okkur Tokic," sagði Gary.

Orri er 28 ára gamall og uppalinn í Þór, hann hefur verið ansi óheppinn með meiðsli í gegnum ferilinn eins og Gary bendir á.


Gary: Stebbi er einn af bestu markvörðum landsins
Athugasemdir
banner
banner
banner