Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 13. ágúst 2022 21:49
Ívan Guðjón Baldursson
Wayne Rooney: Þurfum á Victori að halda
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Wayne Rooney er þjálfari Guðlaugs Victors Pálssonar hjá DC United í MLS deildinni í Bandaríkjunum.


DC keypti Guðlaug Victor af Schalke fyrir um hálfa milljón evra í sumar. Victor, 31 árs, gerði tveggja og hálfs árs samning við félagið sem félagið getur svo framlengt um eitt ár til viðbótar.

Wayne Rooney er þjálfari DC United og var hann spurður út í Victor á fréttamannafundi.

„Hann vill ólmur æfa og spila fótbolta. Ég er mjög ánægður með hans vinnuframlag á æfingum og hann mun vera notaður. Þetta er náttúrulegur leiðtogi sem við þurfum á að halda," sagði Rooney fyrir leik DC gegn fyrrum liðsfélögum Arnórs Ingva Traustasonar í New England Revolution.

Hjá DC mun Victor meðal annars spila með Christian Benteke, Ravel Morrison og Ola Kamara.


Athugasemdir
banner
banner