Fotbolti.net
13.08.26 - 11:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjaði Evrópuleik með Vestra og æfir nú með Bologna

Byrjaði Evrópuleik með Vestra og æfir nú með Bologna
Canon

Mynd: Vestri

Albert Ingi Jóhannsson, varnarmaður Vestra, er þessa stundina á Ítalíu og æfir þar með unglingaliði Bologna.

Albert er efnilegur leikmaður, fæddur 2009, og hefur áður farið til Ítalíu til æfinga og æfði þá með Fiorentina og Parma. Einnig hefur hann farið til Bröndby á reynslu.
Albert byrjaði heimaleik Vestra gegn Qarabag í forkeppni Evrópudeildarinnar í síðasta mánuði og hefur spilað í fimm leikjum í Lengjudeidinni.

Tilkynning Vestra í gær
Fyrr í mánuðinum fékk Albert Ingi boð frá Bologna á Ítalíu um að koma á æfingar hjá félaginu í þessari viku. Albert hefur æft vel og er síðasta æfingin á morgun. Hitabylgja hefur þó gert mönnum erfitt fyrir.

Albert hefur áður farið til æfinga hjá Bröndby, Parma og Fiorentina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.