13.08.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Messi sneri aftur á völlinn eftir fráfall föður síns

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lionel Messi sneri aftur á völlinn í nótt eftir fráfall föður síns.
Jorge Messi, faðir Lionel, var 68 ára þegar hann lést í síðustu viku eftir langvarandi veikindi.
Jorge Messi, faðir Lionel, var 68 ára þegar hann lést í síðustu viku eftir langvarandi veikindi.
Messi var ekki með Inter Miami þegar liðið tapaði gegn Monterrey í Leagues Cup á laugardagskvöldið. Rodrigo De Paul skoraði mark Inter Miami í 2-1 tapi og tileinkaði Messi markið. Hann var í treyju samlanda síns innanundir og sýndi hana þegar hann fagnaði markinu.
Messi sneri aftur á völlinn í nótt. Hann kom inn á í hálfleik þegar Inter Miami tapaði gegn mexíkóska liðinu Club Leon 3-2 í Leagues Cup. Inter Miami er úr leik í keppninni en liðið nældi aðeins í þrjú stig úr þremur leikjum.