Má ekki hafa æfingar á sunnudögum því þá er kirkja

Stóra markmiðið er að verða Færeyjameistari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kæmint Olsen spilar fyrir NSÍ Runavík.

Mynd: EPA

Siggi Raggi með vini sínum Gunnari Einarssyni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

NSÍ hefur verið að ná flottum árangri í Evrópu.

Mynd: EPA

Siggi Raggi stýrði áður Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann var kynntur sem nýr þjálfari NSÍ síðasta vetur.

Mynd: NSÍ Runavík

Stóra markmiðið er að verða Færeyjameistari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Siggi Raggi ræddi við útvarpsþáttinn Fótbolti.net. NSÍ er með þriggja stiga forystu á KÍ Klaksvík og dreymir um að enda uppi sem Færeyjameistari.
„Við teljum okkur eiga fína möguleika og þó við séum ekki nálægt KÍ þegar kemur að fjármagni þá er alltaf möguleiki. Stóra markmiðið okkar er að verða Færeyjameistarar. Þegar ég var ráðinn var markmiðið sem stjórnin setti fram að enda allavega í þriðja sæti eins og í fyrra. Þegar ég var byrjaður með liðið langaði mér að setja markið enn hærra, taldi að við værum með gott lið. Við ætlum að gera allt sem við getum til að reyna að verða Færeyjarmeistarar, það er stóra markmiðið og það mikilvægasta."
Siggi Raggi er að vinna með frekar fámennan hóp í gegnum mikla leikjatörn. Í Færeyjum er spiluð þreföld umferð í tíu liða deild og þá hefur liðið náð flottum árangri í Evrópukeppni og slegið út Spartans frá Möltu og Koper frá Slóveníu.
Meðal leikmanna hjá liðinu eru Klæmint Olsen og Daniel Obbekjær fyrrum leikmenn Breiðabliks. Brandur Olsen fyrrum leikmaður FH er hjá félaginu en spilar ekki meira á tímabilinu vegna meiðsla. Þá er einn íslenskur leikmaður í hópnum, Alex Freyr Elísson, fyrrum leikmaður Fram sem kom frá Njarðvík.
„Hann hefur staðið sig vel og verið vaxandi. Hann spilaði mjög mikið á undirbúningstímabilinu og fyrri hluta móts, hann sýndi stöðugleika og var hægri bakvörður sem kom mikið fram. Svo kom smá tímabil þar sem hann dalaði aðeins og var að glíma við smávægileg meiðsli. Svo er hann að koma upp aftur núna," segir Siggi um Alex.
Einmanalegt en gefandi og þroskandi
Siggi Raggi hefur komið víða við á sínum ferli og þjálfað í bæði Kína og Noregi. Hann var síðast þjálfari Keflavíkur hér heima en hætti haustið 2023 og var fjarverandi frá þjálfun áður en hann var ráðinn til NSÍ fyrir þetta tímabil.
„Ég fékk tækifæri hérna með lið sem er eitt af toppliðunum. Á Íslandi var ég með ÍBV og Keflavík, félög þar sem er ekki hægt að ætlast til mikils meira en að halda sér í deildinni eða vera um miðja deild. Hér er ég í Evrópukeppni og spennandi að fá þetta tækifæri."
„Að sama skapi er einmanalegt að vera hérna einn, í burtu frá börnunum sínum. Auðvitað væri ákjósanlegt að geta starfað hjá góðu liði í sínu heimalandi. Það er samt ekki alltaf raunveruleikinn sem fótboltaþjálfari, maður þarf að vera tilbúinn að vera í burtu í einhvern tíma. Þetta verkefni er mjög skemmtilegt fótboltalega séð, gefandi og þroskandi."
Stelst til að hafa æfingar fyrir messu
„Þetta er ofboðslega fallegt land og gott fólk. Það eru mikil fjölskylduleg og góð gildi. Ég má ekki hafa æfingar á sunnudögum því þá er kirkja. Ég fæ að stelast til að hafa æfingar á sunnudagsmorgnum ef það er leikur daginn eftir, en það má ekki vera á kirkjutíma. Í hverju landi sem ég hef starfað í er ólík menning sem þarf að aðlagast," segir Siggi Raggi en aðeins um 600 manns búa í Runavík.
„Það hefur verið góð mæting á leikina og góð stemning. Maður finnur það hvert sem maður fer að allir í bænum elska liðið. Það tala allir um fótbolta og eru stoltir af liðinu sínu. Árangurinn í Evrópukeppninni hefur verið mikil lyftistöng og við fengum móttöku frá bæjarstjóranum þegar við komum heim. Fólk fagnaði með okkur og það er ofboðslega gaman og gefandi að taka þátt í þessu."
Ekki nálægt laununum í íslenska boltanum
Félagaskiptaglugginn í Færeyjum er lokaður. Eins og fram hefur komið er NSÍ með einn íslenskan leikmann í sínum röðum en Siggi Raggi segir erfitt að fá Íslendinga miðað við launatölurnar sem séu í deildinni heima.
„Ég reyndi aðeins en þegar maður heyrir hvað leikmenn eru með í laun í íslenska boltanum þá erum við ekki nálægt því, við eigum ekki möguleika í það. Kannski breytist það aðeins á næsta ári eftir að hafa fengið pening úr Evrópuárangrinum. Ætli félagið sé ekki rekið á 200 milljónum á ári en fáum núna 160 frá UEFA," segir Siggi Raggi.
„Það er afmælisár hjá félaginu á næsta ári og spurning hvort það komi frekari styrkir eða afmælisgjafir frá fyrirtækjum í bænum. Það er allavega mikill metnaður og vilji til að gera vel. Það er fullt af sjálfboðaliðum sem vinna fyrir félagið á hverjum degi og það er virkilega gaman að sjá það. Þetta starf er virkilega öflugt."
Í útvarpsþættinum er hægt að hlusta á viðtalið við Sigurð Ragnar í heild sinni en þar er rætt nánar um Evrópuævintýrið, eftirtektarðerðan árangur Færeyinga í íþróttum og fleira.

Kæmint Olsen spilar fyrir NSÍ Runavík.

Mynd: EPA

Siggi Raggi með vini sínum Gunnari Einarssyni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

NSÍ hefur verið að ná flottum árangri í Evrópu.

Mynd: EPA

Siggi Raggi stýrði áður Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann var kynntur sem nýr þjálfari NSÍ síðasta vetur.

Mynd: NSÍ Runavík
