13.09.15 - 10:40
Arnar Geir Halldórsson
Adebayor farinn frá Tottenham (Staðfest)

Adebayor yfirgefur Tottenham

Mynd: Getty Images

Adebayor yfirgefur Tottenham

Mynd: Getty Images
Tottenham hefur náð samkomulagi við Emmanuel Adebayor um starfslok framherjans.
Þetta var staðfest á heimasíðu Tottenham í morgun.
Adebayor átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið en er nú frjáls ferða sinna og gæti samið við annað lið í ensku úrvalsdeildinni en West Ham og Aston Villa reyndu að fá hann til liðs við sig í sumar.
Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur verið úti í kuldanum á White Hart Lane. Hann var til að mynda ekki á leikmannalista félagsins, hvorki í úrvalsdeildinni né Evrópudeildinni.
Adebayor hefur verið hjá Tottenham frá árinu 2011 og hefur skorað 41 mark í 106 leikjum fyrir félagið. Hann hefur einnig leikið fyrir Real Madrid, Man City, Arsenal og Monaco.

Heimild: Tottenham