Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 13. september 2022 12:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp vildi ólmur fá Valverde áður en glugginn lokaði
Federico Valverde.
Federico Valverde.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Liverpool vildi kaupa miðjumanninn Federico Valverde áður en félagaskiptaglugginn lokaði á dögunum.

Liverpool var í leit að miðjumanni áður en glugginn lokaði og endaði félagið að lokum á því að fá hinn brasilíska Arthur Melo á láni frá Juventus.

AS á Spáni segir frá því að Jurgen Klopp hafi samt verið hvað spenntastur fyrir því að fá Valverde frá Real Madrid.

Valverde lagði upp sigurmarkið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Liverpool á síðustu leiktíð með góðum spretti.

Það er sagt frá því í grein spænska fjölmiðilsins að Liverpool hafi boðið 100 milljónir evra í Valverde áður en glugginn lokaði, en Real Madrid harðneitaði að selja hann enda er hann mikilvægur fyrir spænska stórveldið.

Valverde er með samning til 2027 og er ekki á förum frá Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner
banner