Byrjunarlið Fylkis og HK: Atli Þór snýr til baka úr banni


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Klukkan 19:15 hefst seinni leikur Fylkis og HK í undanúrslitum Lengjudeildarumspilsins. Leikurinn fer fram í Árbænum á heimavelli Fylkis, Tekk-vellinum. Fylkir vann fyrri leikinn 2–3 í Kórnum, heimavelli HK, og hefur því eins marks forskot.
Liðin enduðu í 3. og 4. sæti Lengjudeildarinnar, Fylkir endaði fyrir ofan HK.
Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, heldur sama byrjunarliði og í fyrri leiknum og gerir engar breytingar. Magnús Daði Ottesen, sem er aðeins 15 ára, fær því aftur traustið frá Heimi eftir að hann byrjaði fyrri leikinn líka.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, gerir eina breytingu á byrjunarliðinu. Þorvaldur Smári Jónsson er ekki á skýrslu og Atli Þór Gunnarsson kemur inn í hans stað. Atli Þór var í banni í síðasta leik.
Byrjunarlið Fylkir
- 1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
- 3. Arnór Breki Ásþórsson (f)
- 4. Hlynur Sævar Jónsson
- 6. Guðfinnur Þór Leósson
- 11. Magnús Daði Ottesen
- 17. Birkir Eyþórsson
- 20. Theodór Ingi Óskarsson
- 23. Aron Snær Guðbjörnsson
- 70. Guðmundur Tyrfingsson
- 77. Bjarki Steinsen Arnarsson
- 92. Kári Sigfússon
Byrjunarlið HK
- 1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m)
- 5. Þorsteinn Aron Antonsson
- 8. Arnþór Ari Atlason (f)
- 10. Atli Hrafn Andrason
- 15. Birgir Steinn Styrmisson
- 16. Svavar Örn Þórðarson
- 17. Dominik Radic
- 19. Atli Þór Gunnarsson
- 21. Ívar Örn Jónsson
- 27. Karl Ágúst Karlsson
- 28. Tumi Þorvarsson


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
