Fotbolti.net
13.10.19 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Maguire: Við verðum að bæta okkur

Maguire: Við verðum að bæta okkur
Canon

Mynd: Getty Images

Harry Maguire, varnarmaður Manchester United og enska landsliðsins, var óánægður með 2-1 tapið gegn Tékklandi um helgina.
Maguire samdi við Manchester United í sumar frá Leicester og er dýrasti varnarmaðurinn frá upphafi en byrjun hans þar hefur ekki gengið eins og í sögu.

Leikmenn virðast hafa tekið slæmt gengi með félagsliðum og það smitað landsliðið.

„Já, það gæti verið. Við mætum hingað með landsliðinu beint frá félagsliðum okkar en þetta var erfiður leikur og við byrjuðum illa. Við vorum með stjórn í síðari hálfleik og gefum þeim svo slappt mark sem vinnur leikinn fyrir þá. Við þurfum að bæta okkur, því vorum langt frá okkar besta og okkur var refsað fyrir það," sagði Maguire.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.