13.11.14 - 17:33
Elvar Geir Magnússon
- skrifar úr ÁrbænumÁsgeir Börkur í Fylki (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn öflugi Ásgeir Börkur Ásgeirsson er kominn heim í Lautina en hann skrifaði undir þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt Fylki nú rétt áðan. Nú stendur yfir fréttamannafundur í Fylkishöllinni.
Ásgeir Börkur gekk til liðs við GAIS undir lok árs í fyrra og lék með liðinu í sænsku B-deildinni.
Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings, hafði einnig áhuga á að fá leikmanninn en á endanum ákvað hann að skrifa undir hjá uppeldisfélaginu.
Viðtal við Ásgeir Börk mun birtast hér á síðunni á eftir.
Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings, hafði einnig áhuga á að fá leikmanninn en á endanum ákvað hann að skrifa undir hjá uppeldisfélaginu.
Viðtal við Ásgeir Börk mun birtast hér á síðunni á eftir.
