Fotbolti.net
13.11.14 - 09:28
Magnús Már Einarsson
- Félagaskipti

Daníel Leó í Álasund (Staðfest)

Daníel Leó Grétarsson.

Daníel Leó Grétarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Leó Grétarsson úr Grindavík hefur gert þriggja ára samning við norska félagið Álasund.

Þetta staðfesti Ólafur Garðarsson umboðsmaður hans í samtali við Fótbolta.net í dag.
Álasund og Grindavík náðu fyrr í vikunni samkomulagi um kaupverð og Daníel Leó hefur nú gengið frá þriggja ára samningi.

Þessi 19 ára gamli varnar og miðjumaður mun halda til Noregs í janúar næstkomandi.

Hann verður annar Íslendingurinn hjá Álasund því félagið keypti einnig Aron Elís Þrándarson frá Víkingi á dögunum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.