Fotbolti.net
13.11.14 - 13:28
Alexander Freyr Tamimi

Rúnar Kristinsson tekinn við Lilleström (Staðfest)

Rúnar er tekinn við Lilleström.

Rúnar er tekinn við Lilleström.

Canon

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

Rúnar Kristinsson hefur verið ráðinn þjálfari Lilleström, en þetta staðfesti félagið á blaðamannafundi í dag.

Þessi fyrrum þjálfari KR var kynntur á blaðamannafundinum og skrifaði hann undir þriggja ára samning við norska úrvalsdeildarfélagið.
Rúnar hafði verið sterklega orðaður við Lilleström undanfarnar vikur og þegar hann ákvað að gera ekki nýjan samning við KR þótti nokkuð ljóst að hann væri á förum til Noregs.



,,Þetta er félag sem ég spilaði fyrir, þetta er félag sem ég elska og hef fylgst með undanfarin ár. Það er gaman að koma til baka og fá þetta tækifæri,\" sagði Rúnar.



Stuðningsmenn Lilleström fagna ráðningunni á Twitter og eru ánægðir með að fá Rúnar aftur til félagsins, þar sem hann lék á árunum 1997 til 2000 við góðan orðstír.



Rúnar tekur við liðinu af Magnus Haglund, sem hefur verið ráðinn þjálfari sænska úrvalsdeildarliðsins Elfsborg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.