Sergio Aguero og John Stones verða fjarri góðu gamni þegar Manchester City mætir Arsenal á sunnudaginn.
Báðir leikmennirnir hafa verið að glíma við meiðsli og Pep Guardiola reiknar ekki með að þeir nái leiknum helgina.
Báðir leikmennirnir hafa verið að glíma við meiðsli og Pep Guardiola reiknar ekki með að þeir nái leiknum helgina.
Þá er David Silva tæpur fyrir leikinn vegna meiðsla.
„Hann æfði ekki í gær og í dag en á morgun sjáum við þetta betur.
Hann fékk sársaukafullt spark í fótinn," sagði Guardiola um Silva.
Athugasemdir