Vill koma aftur til Íslands
Spænski framherjinn Gonzalo Zamorano hefur fengið félagaskipti yfir í sitt gamla félag Alamo í spænsku D-deildinni.
Gonzalo spilaði með ÍA í Pepsi Max-deildinni í sumar en komst að samkomulagi um starfslok þar á dögunum.
Gonzalo spilaði með ÍA í Pepsi Max-deildinni í sumar en komst að samkomulagi um starfslok þar á dögunum.
Gonzalo hafði áður spilað með Víkingi Ólafsvík í Inkasso-deildinni árið 2018 og með Hugin í 2. deildinni árið 2018.
Í samtali við Fótbolta.net í dag segist Gonzalo ætla að spila með heimaliði sínu Alamo næstu vikurnar þangað til hann finnur félag til að spila með á Íslandi.
Gonzalo mun spila með Alamo í spænsku D-deildinni um helgina en í næstu viku spilar liðið síðan gegn úrvalsdeildarliði Real Mallorca í 64-liða úrslitum spænska konungsbikarsins.
🚨OFICIAL🚨
— C.D. El Álamo (@CD_El_Alamo) December 13, 2019
Gonzalo Zamorano vuelve al #cdelalamo... el delantero está a las ordenes del Mister y listo para debutar!!! BIENVENIDO A CASA!!! #seguimosdecopas pic.twitter.com/nl9EzKrqBd
Athugasemdir