Dejan Lovren, varnarmaður Liverpool, verður ekki með liðinu gegn Watford á morgun vegna meiðsla.
Lovren meiddist gegn Salzburg í vikunni og verður ekki klár á morgun.
Joel Matip er einnig meiddur og því verða Virgil van Dijk og Joe Gomez í hjarta varnarinnar á morgun.
„Þetta er áhyggjuefni en þetta er ekki í fyrsta skipti sem við erum í þessari stöðu," sagði Klopp.

„Í augnablikinu höfum við tvo menn og við þurfum að passa upp á þá. Við þurfum að setja þá í bómul og spyrja þá hvað þeir vilja gera á æfingum. Við eigum líka krakkana Ki-Jana (Hoever) og Sepp (van de Berg)."
Athugasemdir