Fotbolti.net
13.12.20 - 18:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Viðtal

„Fæ mjög oft tilboð þar sem alls konar er lofað en í 90% tilvika er þetta bull og vitleysa"

Úr leik með Excelsior í vetur

Úr leik með Excelsior í vetur

Canon

Mynd: Getty Images

Elías Már Ómarsson ræddi við Fótbolta.net um helgina og fór yfir tímabilið til þessa með Excelsior í Hollandi. Í fyrri hlutanum ræddi hann um markaskorunina í vetur, A-landsliðið og fleira.

Hér í þessum seinni hluta verður einblínt á stöðu Elíasar hjá Excelsior og hann meðal annars spurður hvort hann klári tímabilið með félaginu.

Fyrri hluti:
Elías Már: Tilgangur leiksins er ekki að skora 1-3 mörk en samt tapa
Ég ræddi við þig fyrir rúmu ári síðan. Þá varstu ekkert rosalega spenntur fyrir því að spila í næstefstu deild. Hvernig er tilfinningin fyrir því núna?

„Þankagangurinn er sá sami, ég er ekkert voða spenntur að spila í næstefstu deildinni. En hér er ég á samning og þetta er áfram fótbolti - það er það sem maður elskar. Sama hvar maður er að spila þá vill maður alltaf standa sig vel. Eina leiðin til að komast í sterkari deildir er að gera það," sagði Elías.

„Ég er ekkert að svekkja mig eða pirra mig á því að spila í næstefstu deild þó maður vilji vera í sterkari deildum. Einbeitingin er á verkefninu hér og að reyna hjálpa liðinu eins og ég. Það getur svo gefið mér möguleikann á því að spila í sterkari deild. Ef maður er ekki að standa sig vel þar sem maður er þá á maður ekki skilið að spila í sterkari deild."

Á síðustu leiktið var skrifað um að áhugi væri á þér frá sterkari félögum í Hollandi ásamt liðum í Þýskalandi og á Englandi. Það gerðist ekkert í þeim málum í sumar?

„Nei, ekkert eftir að heimsfaraldurinn hófst. Fleiri félög voru í peningavandræðum og voru minna að leitast eftir leikmönnum. Glugginn í sumar var ekki sá auðvaldasti en ég var ekkert að stressa mig á því. Ég var tilbúinn að byrja tímabilið hér og reyna sanna mig og hugsaði að eitthvað gæti kannski gerst í janúar eða næsta sumar, maður veit aldrei."

Hvernig er staðan á þínum málum, geturu sagt mér að þú sért að fara klára tímabilið hjá Excelsior? Veistu af áhuga á þér?

„Ég er ekki alveg 100% til að svara fyrri spurningunni. Maður er að fá skilaboð frá alls konar umboðsmönnum á hverjum degi en það er ekkert alltaf að marka það. Það kemur mjög oft fyrir að ég fæ alls konar tilboð þar sem alls konar er lofað en í 90% tilvika er þetta bull og vitleysa, held ég."

„Ég er með umboðsmann sem sér um þessa hluti og ég er því ekkert að stressa mig á þessu. Ég leyfi umboðsmanninum að sjá um þessi mál og ég get einbeitt mér að þessu tímabili og að standa mig vel."


Færðu mikið af persónulegum skilaboðum, frá Keflvíkingum og vinum, um að þú eigir heima í betra liði?

„Nei, það er ekkert verið að ýta á eftir mér eða neitt slíkt. Það vita allir sem eru mér nánir hver það er sem ég stefni, ég vil ná lengra. Það þýðir ekkert að vera stressa sig á svona hlutum og ýta á eftir í einhverri fljótfærni. Grasið er ekkert alltaf grænna hinu megin."

„Við sjáum til hvað gerist þegar gluggarnir opnast, hvort það koma spennandi tilboð og hvort maður vill fara bara einhvert annað eða hvort persónulegur árangur hér með liðinu skili manni lengra,"
sagði Elías.
Ég var tilbúinn að byrja tímabilið hér og reyna sanna mig

Ég var tilbúinn að byrja tímabilið hér og reyna sanna mig

Canon

Mynd: Getty Images

Maður er að fá skilaboð frá alls konar umboðsmönnum á hverjum degi

Maður er að fá skilaboð frá alls konar umboðsmönnum á hverjum degi

Canon

Mynd: Getty Images

Nei, það er ekkert verið að ýta á eftir mér eða neitt slíkt. Það vita allir sem eru mér nánir hver það er sem ég stefni, ég vil ná lengra

Nei, það er ekkert verið að ýta á eftir mér eða neitt slíkt. Það vita allir sem eru mér nánir hver það er sem ég stefni, ég vil ná lengra

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.