13.12.20 - 14:14
Ívan Guðjón Baldursson
Favre rekinn frá Dortmund - Terzic tekur við út tímabilið (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Þýski miðillinn Bild greinir frá því að Borussia Dortmund sé búið að taka ákvörðun um að reka Lucien Favre úr starfi.
Favre er 63 ára gamall Svisslendingur sem hefur verið við stjórnvölinn hjá Dortmund í tvö og hálft ár.
Dortmund hefur tapað þremur heimaleikjum í röð í þýsku deildinni, gegn FC Bayern, Köln og nú síðast gegn Stuttgart. Tapleikurinn gegn Stuttgart hefur fyllt mæli stjórnenda enda skoruðu nýliðarnir fimm mörk á Westfalenstadion.
Favre á flottan þjálfaraferil að baki án þess þó að hafa tekist að vinna neinar keppnir síðan hann var við stjórnvölinn hjá Zürich í heimalandinu. Hann hefur meðal annars stýrt Herthu Berlin, Borussia Mönchengladbach og Nice.
Uppfærsla:
Dortmund hefur staðfest fregnirnar. Edin Terzic tekur við sem bráðabirgðaþjálfari út tímabilið.

Borussia Dortmund have parted ways with head coach Lucien Favre.
— Borussia Dortmund (@BlackYellow) December 13, 2020
The club would like to thank Lucien for his dedication and wish him success in his future. pic.twitter.com/eOxSY1w9RY
Bundesliga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Bayern | 9 | +20 | 21 |
| 2 | Dortmund | 9 | +9 | 21 |
| 3 | Freiburg | 9 | +10 | 19 |
| 4 | RB Leipzig | 9 | +14 | 18 |
| 5 | Leverkusen | 9 | +3 | 16 |
| 6 | Werder | 9 | +2 | 15 |
| 7 | Elversberg | 9 | -1 | 13 |
| 8 | Stuttgart | 9 | 0 | 12 |
| 9 | Hoffenheim | 9 | -1 | 12 |
| 10 | Frankfurt | 9 | -5 | 12 |
| 11 | Hamburger | 9 | -10 | 12 |
| 12 | Mainz | 9 | -1 | 10 |
| 13 | Paderborn | 9 | -3 | 10 |
| 14 | Augsburg | 9 | 0 | 9 |
| 15 | Köln | 9 | -4 | 9 |
| 16 | Union Berlin | 9 | -14 | 7 |
| 17 | Schalke 04 | 9 | -6 | 6 |
| 18 | Gladbach | 9 | -13 | 4 |