13.12.20 - 13:32
Ívan Guðjón Baldursson
Helena Ólafsdóttir í þjálfarateymi ÍR (Staðfest)

Helena starfaði síðast hjá ÍA og stýrði liðinu frá 2016 til 2019.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helena Ólafsdóttir er búin að skrifa undir samning við knattspyrnudeild ÍR og verður hluti af þjálfarahóp meistaraflokks kvenna.
Helena er goðsögn í íslenskri knattspyrnu þar sem hún raðaði inn mörkunum með KR á síðustu öld. Hún spilaði sinn fyrsta leik fyrir KR 1986 og þann síðasta 2001.
Helena er 51 árs og býr yfir mikilli reynslu úr íslenska boltanum, ekki aðeins sem leikmaður heldur einnig sem þjálfari. Hún hefur þjálfað íslenska landsliðið, Fortuna Ålesund í Noregi og Val, KR, Selfoss, FH og ÍA á Íslandi.
„Helena er með UEFA A – þjálfaragráðu og vinnur nú að UEFA pro gráðu auk þess sem hún hefur lokið námi í styrktarþjálfun og er markþjálfi. Hún er íþróttakennari að aðalstarfi og starfar við afreksbraut Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi," segir meðal annars í færslu ÍR á Facebook sem má sjá hér fyrir neðan.
„Það eru mjög spennandi hlutir í gangi hjá ÍR, með tilkomu knattspyrnuhússins þá er aðstaðan orðin flott og verður enn glæsilegri þegar nýja íþróttahúsið verður klárt og allt félagið þá komið á sama stað," segir Helena.
„Ég tel mína rödd inn í þjálfarateymið hjá ÍR geta hjálpað félaginu að ná þangað sem það langar, bæði til styttri tíma litið en ekki síður í framtíðaruppbyggingunni. Ég finn metnað hjá stjórninni að gera vel, ég geri háar kröfur inn í það íþróttaumhverfi sem ég kem og finn að þær falla í kramið hjá félaginu.“
Helena mun sjá um styrktarþjálfun og markmiðssetningu hjá meistaraflokki auk þess að starfa með Barna- og unglingaráði við að styrkja undirstöðurnar fyrir meistaraflokkinn.
„Við ætlum að verða í besta forminu í 2.deild og nýta okkur það til að ná því markmiði að færa liðið sem er andlit kvennaboltans í ÍR í efri deildir."

Þær gleðifregnir berast nú úr knattspyrnuheiminum að Helena Ólafsdóttir hefur skrifað undir samning knattspyrnudeild ÍR...
Posted by ÍR Fótbolti on Sunday, 13 December 2020