14.01.15 - 13:49
Magnús Már Einarsson
Leikmaður sem ólst upp hjá Arsenal í Þrótt (Staðfest)

Gregg Ryder þjálfari Þróttar og Dion Acoff.

Mynd: Heimasíða Þróttar

Þróttur hefur fengið hægri kantmanninn Dion Acoff til liðs við sig en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Dion var á skotskónum þegar Þróttur tapaði 7-1 gegn FH í Fótbolta.net mótinu í gærkvöldi.
Dion kemur til Þróttar frá bandaríska háskólaliðinu UC Santa Barbara University og spilaði áður með Creighton-háskóla.
Dion er fæddur árið 1991 en hann er að hluta til alinn upp í knattspyrnuakademíu Arsenal í Lundúnum. Þess má geta að hann á jafnframt að baki stuttan keppnisferil sem 100, 200 og 400 metra hlaupari.
,,Þróttarar vænta mikils af Dion á komandi tímabili og bjóða hann hjartanlega velkominn í félagið. Fyrstu leikir Dion með með Þrótti voru gegn ÍA og FH í Fótbolt.net-mótinu þar sem hann þótti standa sig með eindæmum vel,\" segir á heimasíðu Þróttar.