Fotbolti.net
14.01.15 - 13:59
Elvar Geir Magnússon

Júlíus Magnússon semur við Heerenveen (Staðfest)

Júlíus skrifar undir hjá Heerenveen.

Júlíus skrifar undir hjá Heerenveen.

Canon

Mynd: Heerenveen

Heerenveen í Hollandi hefur keypt sextán ára strák, Júlíus Magnússon, af Víkingi Reykjavík. Þetta kemur fram á heimasíðu Heerenveen.

Júlíus er sextán ára gamall unglingalandsliðsmaður sem leikið hefur tólf leiki fyrir U17 landsliðið.
„Ég er mjög ánægður með þetta skref, tel að þetta sé skref í rétta átt og hefur alltaf verið markmiðið,\" sagði Júlíus við Fótbolta.net.

Hann er miðjumaður og skrifaði undir samning til tveggja og hálfs árs. Hann mun spila með U19 liði félagsins til að byrja með.

Hjá Heerenveen er annar Íslendingur, Albert Guðmundsson, sem talinn er einn efnilegasti leikmaður Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.