Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 14. janúar 2020 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
England í dag - Þrjú úrvalsdeildarfélög leika endurtekinn leik
Leikið á heimavelli Tottenham í kvöld.
Leikið á heimavelli Tottenham í kvöld.
Mynd: Getty Images
Sex leikir fara fram í 3. umferð ensku bikarkeppninnar. Þetta er í annað sinn, sem liðin sem mætast í kvöld, mætast.

Það er vegna þeirrar reglu að leikir sem enda með jafntefli eru endurteknir á þessu stigi keppninnar, ekki er framlengt eða haldið í vítaspyrnukeppni ef jafntefli verður í 'fyrri leiknum'.

Nú er leikið á heimavelli þess liðs sem var á útivelli í 'fyrri leiknum'. Þrjú úrvalsdeildarfélög eru í eldlínunni í kvöld.

Newcastle fær Rochdale í heimsókn, Tottenham tekur á móti Middlesbrough og Watford sækir Tranmere Rovers heim.

Leikur Tottenahm og Middlesbrough verður í beinni útsendingu hjá Stöð 2 Sport.

England FA bikarinn 3. umferð - Endurteknir leikir:
19:45 Blackpool - Reading
19:45 Coventry - Bristol R.
19:45 Newcastle - Rochdale
19:45 Shrewsbury - Bristol City
19:45 Tranmere Rovers - Watford
20:05 Tottenham - Middlesbrough (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir
banner
banner