Sky Sports greinir frá því að áhugi Chelsea á Nathan Ake og Callum Wilson, leikmönnum Bournemouth, er ekki lengur til staðar.
Ake var eitt sinn leikmaður Chelsea og getur félagið keypt hann til baka fyrir 40 milljónir punda. Verðmiðinn á Callum Wilson er talinn vera svipaður þrátt fyrir að hann sé ekki búinn að skora í ensku deildinni síðan í lok september.
Chelsea beinir því athygli sinni að öðrum leikmönnum en ljóst er að félagið vill kaupa sóknarmann fyrir lok vetrargluggans. Frank Lampard vill alvöru samkeppni fyrir Tammy Abraham í framherjastöðunni.
Eddie Howe, þjálfari Bournemouth, er eflaust sáttur með þessar fregnir. Hann þarf á lykilmönnum sínum að halda í fallbaráttunni sem er framundan.
Athugasemdir