Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. janúar 2020 10:05
Magnús Már Einarsson
Watford að krækja í kantmann
Mynd: Getty Images
Watford er að fá kantmanninn Ignacio Pussetto í sínar raðir frá Udinese á Ítalíu.

Hinn 24 ára gamli Pussetto er frá Argentínu en hann hefur spilað tólf leiki í Serie A á tímabilinu.

Watford greiðir Udinese sjö milljónir punda fyrir Pussetto en félagaskiptin ættu að ganga í gegn í dag.

Bæði Watford og Udinese eru í eigu Pozzo fjölskyldunnar og leikmenn hafa oft gengið kaupum og sölum á milli félaganna.

Watford hefur náð í þrettán stig í síðustu fimm deildarleikjum og klifraði upp úr fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner