Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 14. janúar 2021 13:37
Magnús Már Einarsson
PSG ræðir framlengingu við Neymar
Mynd: Getty Images
Paris Saint-Germain hefur hafið viðræður við Neymar um framlengingu á samningi.

Neymar kom til PSG frá Barcelona á 200 milljónir punda árið 2017 og gerði þá fimm ára samning.

Í fyrra var Neymar orðaður við endurkomu til Barcelona sem og brottför til Real Madrid.

Neymar er hins vegar ánægður hjá PSG í dag og hann gæti framlengt samning sinn við frönsku meistarana í ár.

Neymar er 28 ára gamall en hann skoraði sigurmark PSG gegn Marseille í meistarakeppninni í Frakklandi í gær.
Athugasemdir
banner
banner