Fotbolti.net
20.06.26 - 14:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Maður dagsins á HM - Fengið tvö söguleg spjöld

Miguel Almiron

Miguel Almiron

Canon

Mynd: EPA

Leikmaður dagsins
Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

Miguel Almiron, leikmaður Paragvæ, er maður dagsins en hann er valinn fyrir að brjóta blað í sögu heimsmeistaramótsins. Það er þó ekki jákvætt fyrir hann því hann hefur fengið tvö spjöld í fyrstu tveimur leikjunum. Þetta er í fyrsta sinn sem dómari nýtti tvær nýjar reglur á HM.
Sjáðu atvikið: Almiron fékk beint rautt fyrir að setja hönd fyrir munninn
TENGT EFNI

Sjáðu atvikið: Almiron fékk beint rautt fyrir að setja hönd fyrir munninn

Tim Ream, varnarmaður Bandaríkjanna, fékk gult spjald í fyrstu umferð fyrir brot á Almiron. Dómarinn gat hins vegar farið í skjáinn og sá að það var engin snerting og Almiron fékk að líta gula spjaldið fyrir dýfu.

Almiron var síðan rekinn af velli í nótt þegar hann hélt fyrir munninn og lét einhver orð falla við Mert Muldur, leikmann tyrkneska liðsins.

Nýja reglan: Bannað að halda fyrir munninn
Þegar leikmenn eru að tjá sig mega þeir ekki halda fyrir munninn líkt og Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, gerði í leik gegn Real Madrid. Vinícius Júnior sakaði hann um kynþáttafordóma.

Leikmenn sem halda fyrir munninn í slíkum samskiptum eiga að fá rautt. Ef um eðlileg og vinaleg samskipti er að ræða mega menn hinsvegar halda fyrir munninn.

Paragvæ mætir Ástralíu í lokaumferðinni 26. júní og tryggir sér sæti í 32-liða úrslitum með sigri. Liðið verður hins vegar án Almiron þar sem hann er í banni.
Ivan Barton rak Miguel Almiron af velli

Ivan Barton rak Miguel Almiron af velli

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.