banner
   fös 14. janúar 2022 20:34
Victor Pálsson
Ronaldo vongóður um að ná leiknum
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United, er vongóður um að ná næsta leik liðsins sem fer fram á morgun.

Ronaldo var fjarri góðu gamni í vikunni í 1-0 sigri á Aston Villa í bikarnum en hann var að glíma við smávægileg meiðsli.

„Ég vona það. Ég mun reyna að æfa eins og venjulega. Við sjáum hvernig líkaminn bregst við. Ég er vongóður," sagði Ronaldo.

Man Utd spilar við Villa í ensku úrvalsdeildinni á morgun stuttu eftir að hafa mætt liðinu í bikarnum.

Það eru því líkur á að þessi 36 ára gamli leikmaður verði klár en það mun ekki koma í ljós fyrr en á morgun.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner