Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 14. janúar 2023 10:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arsenal að undirbúa nýtt tilboð í Mudryk
Mynd: Getty Images
Fabrizio Romano greinir frá því að Arsenal sé að undirbúa nýtt tilboð í Mykhailo Mudryk en félagið hefur áður boðið um 70 milljónir evra auk 25 milljónum í aukagreiðslur.

Ekkert vesen er með samningamál leikmannsins við Arsenal þar sem hann er harðákveðinn í að fara til Lundúna og búinn að samþykkja samning sinn við félagið.

Romano segir að tilboð muni berast í leikmanninn á næstu klukkutímum en Arsenal mun að öllum líkindum bjóða betri aukagreiðslur.

Mudryk er 22 ára gamall vængmaður en hann á 29 leiki fyrir Shakhtar Donetsk og hefur skorað 9 mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner