Fotbolti.net
14.02.15 - 13:20
Arnar Geir Halldórsson

Brynjar Ben í Fram (Staðfest)

Brynjar Benediktsson

Brynjar Benediktsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjar Benediktsson er genginn til liðs við 1.deildarlið Fram.
Brynjar kemur til liðsins frá Haukum þar sem hann hefur skorað 16 mörk í 40 leikjum í 1.deildinni á síðustu tveim árum.

Áður lék Brynjar með Leikni, ÍR og FH þar sem hann er uppalinn en hann lék 5 leiki með FH í Pepsi deildinni árið 2009.

Alls á Brynjar 104 leiki að baki og hefur skorað í þeim 26 mörk. Hann mun klárlega koma til með að styrkja lið Fram sem féll úr Pepsi deildinni síðasta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.