14.02.15 - 16:27
Arnar Geir Halldórsson
Elfar Árni Aðalsteinsson í KA (Staðfest)

Elfar Árni í leik með Breiðablik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elfar Árni í leik með Breiðablik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elfar Árni Aðalsteinsson er genginn í raðir KA en hann kemur til Akureyrarliðsins frá Breiðablik.
Elfar Árni er uppalinn hjá Völsungi á Húsavík en hefur spilað með Breiðablik frá árinu 2012 og á 104 leiki fyrir Kópavogsliðið í deild og bikar. Í þessum 104 leikjum hefur hann skorað 27 mörk.
KA setur markið hátt fyrir næsta sumar en auk Elfars Árna hafa þeir Halldór Hermann Jónsson og Hilmar Trausti Arnarsson gengið til liðs við félagið í vetur. Elfar Árni gerir þriggja ára samning við KA.
Elfar Árni gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir KA þegar liðið mætir Fjölni í Lengjubikarnum á morgun.

Heimild: Blikar.is